Velkomin á Veiðivefinn. Nú er ráð að halla sér vel aftur í stólnum og skoða vefinn í rólegheitunum. Ef þér finnst eitthvað vanta, vilt bæta einhverju við eða bara lýsa ánægju þinni með vefinn, þá mælum við með að þú takir þátt í umræðunni á korknum. Veiðivefurinn er fyrst og fremst hugsaður sem vefur fyrir þig. Nýttu þér hann, notaðu korkinn til að koma þínum skoðunum á framfæri og/eða til að afla upplýsinga. Þú getur notað smáauglýsingarnar til að auglýsa , öllum að kostnaðarlausu að sjálfsögðu. Einnig er dagatalið opið öllum þeim sem vilja skrá atburði, hvort sem er til að hafa fyrir sjálfan sig eða til að deila með öðrum.
Njóttu vel !
Fréttir
Leyfi veitt fyrir fiskeldi upp í miðri hlíð
03/03/2010 15:21:48
Heilbrigðiseftirlit Vestfjarða hefur gefið út níu starfsleyfi til kvíaeldis laxfiska í sjó í Arnarfirði. Um er ræða starfsleyfi til að stunda fiskeldi við strendur landsins. Hagsmunaaðilar hafa mótmælt því að ekki séu gerðar meiri kröfur fyrir slíkar leyfisveitingar og segja þær vera komnar í óefni ...
Krabbameinsfélagið í samvinnu við Stangaveiðifélag Reykjavíkur, Veiðihornið og Veiðikortið efnir til glæsilegrar hnýtingakeppni um silungaflugu. Glæsileg verðlaun eru í boði fyrir þær flugur sem lenda í þremur efstu sætunum í tveimur flokkum: Almennum flokki og unglingaflokki (16 ára og yngri).
<...
Fluguveiðiskóli verður áfram rekinn á Langárbökkum næsta sumar. Verður skólinn haldinn á veiðitímanum sjálfum og enn eru nokkur pláss fyrir hendi.
Að sögn Ólafs Finnbogasonar sem fer fyrir skólanum þá verður hann haldinn dagana 24-26 júní í sumar.
Farið er yfir veiðar með einhendu og tvíhendu, ...
Söluverðmæti stangaveiðileyfa hérlendis gæti numið um 3 milljörðum á ári, auk þess sem að ýmiss konar bein þjónusta við veiðimenn er áætluð um 2 miljarðar á ársgrundvelli samkvæmt úttekt tímaritsins Frjálsrar verslunar.
Þar segir að þess utan sé það mat Hagfræðistofnunar Íslands að afleidd áhrif st...
Kæru veiðimenn og konur. Veiðivefurinn óskar ykkur gleðilegra jóla og farsældar á komandi (veiði)ári.
Þökkum (vef)stundirnar á árinu sem er að líða, vonandi verða þær fleiri á næsta ári.
Veiði og jólakveðja, - veiði.is