| Höfundur |
Póstur  |
|
Falk65
798 Póstar
|
Póstað - 03/05/2010 : 21:41:41
Kominn heim eftir sólarhringstúr í Hlíðarvatn kom austur í gær um 8 veiddum fram í myrkur kalt en hægviðri og fengum ég og félagi minn nokkrar tökur en vantaði herslumunin til að Bleikjan tolldi á :)Vöknuðum kl 7 nenntum ekki strax út drukkum bara kaffi og spjölluðum en um 9 fórum við að stað og byrjuððum í Botnavík en urðum ekki varir en í gærkvöldi urðum við varir á Austurnefi og Skollapollum Skelltum okkur svo austur með vatninu og á töngum austast í vatninu fengum við skot kl 10 og settum í fullt af Bleiku lönduðum yfir 40 stykkjum hirtum af þeim 12 stykki fórum svo í Árblik og nærðumst mættum svo aftur kl 15:00 og lentum aftur í Bleikjustuði og nú var á í hverju kasti en megnið smábleikja en hirtum 18 í viðbót en lönduðum yfir 50 stykkjum og misstum annað eins þannig að þessi dagur við Hlíðarvatn var með þeim skemmtilegri í Vatnaveiðini hjá mér :) Flugur voru Peacock Bobbinn og fleiri heimatilbúnar drápsmaskínur he he En það gersamlega skifti öllu að það fór að rigna og blása af sunnan og hitinn hækkaði frá um 2°C um morgunin í 10 - 11 °C um miðjan daginn Kv Falkinn Breytt af - Falk65 þann 04/05/2010 10:34:28 G-Loomis Stinger GLX þriggja hluta 14fet Lína#9/10 G-Loomis Native Run GLX fjögura hluta 10fet Lína#6 G-Loomis PMR tveggja hluta 9fet Lína#7 Wow þessi var allavega 20 p :)
|
tha
1175 Póstar
|
Póstað - 04/05/2010 : 09:26:39
Hvernig er veiðin búin að vera skv. bókinni?Voruð þið þá búnir að skanna allan austurbakkann, voruð þið að veiða á ómerktum veiðistöðum? Ferðu aldrei heim með öngulinn í óæðri endanum? Kveðja, tha. ><)))(">

|
Falk65
798 Póstar
|
Póstað - 04/05/2010 : 09:51:06
Það voru skráðar 3 Bleikjur í Árbliki Vorum við Austurbakkan og Enduðum í Hlíðarey O jú maður fer (Stundum) heim með Öngulinn í rassinum he he en það eru svo túranir sem gefa manni fiskinn sem gefa þessu gildi og maður lifir á þeim :) G-Loomis Stinger GLX þriggja hluta 14fet Lína#9/10 G-Loomis Native Run GLX fjögura hluta 10fet Lína#6 G-Loomis PMR tveggja hluta 9fet Lína#7 Wow þessi var allavega 20 p :) |
chrysophylax
150 Póstar
|
Póstað - 04/05/2010 : 12:00:38
Gott að menn eru farnir að reyta upp úr Hlíðarvatni. Var þarna dagpart á sunnudaginn og þetta virtist frekar dauft og fáar stangir úti - enda vatnshiti lágur og lofthiti ekki ýkja hár heldur. En það vantar semsagt nokkrar bleikjur frá mér í Árbliksbókina - því ég fann ekki lykilinn að húsinu.Markverðasti hluti ferðarinnar var að ég hitti mikinn blöðrusel þarna við vatnið. Var hann hinn vingjarnlegasti um morguninn þar sem hann tók mig tali þar sem ég var að koma úr Kaldósnum (fisklaus) en svo sá ég undir iljarnar á honum beint austur um vatnið þegar ég sagði honum að ég hefði séð upptökur þar þegar ég kom úr bænum. Segir ekki meira af honum um sinn, nema hvað ég sá til hans við veiðar þarna að austanverðu og hann virtist vera í einhverju smábleikjukroppi. Nú liður að hádegisverði og ákvað ég að fara og spyrja Austmanninn frétta. Þrátt fyrir einhver aflabrögð þá var hann nú orðinn hinn illasti viðureignar. Var nærveru minnar greinilega ekki óskað í neinu nágrenni við hans heimasvæði. Hefur líklega haldið að ég ætlaði að koma og stela af honum veiðistaðnum. Stutt samtal okkar var allt hið spaugilegasta og taldi ég mér hvergi vært á austurbakkanum nema úti í Hlíðarey - var þá líkt ástatt og segir í Gíslasögu: "það er sagt að þá er Þorgrímur nef gerði seiðinn að hann mælti svo fyrir að Gísla skyldi ekki að gagni verða þó að menn byrgju honum hér á landi; en það kom honum eigi í hug að skilja til um úteyjar og entist því þetta hóti lengst þótt eigi yrði þess álengdar auðið" Það litla sem ég fékk þarna að austanverðu var algert smælki - en ég setti svo í sæmilegan fisk á Réttarnesinu.  |
khs
32 Póstar
|
Póstað - 04/05/2010 : 14:27:29
Hvernig hafa menn verið að veiða þarna?Sjálfur hef ég alltaf notað flotlínu með ca 4-5 leader og gefist misvel en alltaf fiskur. Svo prufaði ég síðasta sumar sökkenda í Kaldós og mokaði þá eftir að hafa núllað þar í mörg ár án sökkenda. Sökkendinn gerði ágæta hluti annarsstaðar þó hann henti ekki alls staðar en vissulega í Kaldós. Svo hefur mig alltaf langað að vita hvernig menn veiða fyrir bústað SVH. Þar er alltaf skráð töluverð veiði en mér tekst að fá fáa eða enga. Annars er botnvíkin ótrúlegur veiðistaður og flottasta vík sem finnst í vötnum á Íslandi. Breytt af - khs þann 04/05/2010 14:28:57 Kristinn |
chrysophylax
150 Póstar
|
Póstað - 04/05/2010 : 16:12:03
Ekki ætla ég að leggja mönnum lífsreglurnar í Hlíðarvatni enda ekki komið þar nema tvisvar. Ég átta mig samt ekki á því hvernigsökk endi á að veiða miklu betur í stöðuvatni heldur en flotlína með löngum taumi. Þó má nefna þegar taumlengd er komin langt yfir stangarlengdina þá verður bagalegt að kasta upp í vindinn - köstin "springa" því ekki tekst að færa "kraftinn" úr línunni alla leið um svo langan taum.Ég sá einmitt veiðimenn að veiðum þarna framan við SVS bústaðinn- stóðu þar á skeri rétt við landið (gátu lítið/ekkert vaðið) og köstuðu með miklum látum beint upp í vestanáttina (þvert á gamalgróin internet gildi um að kasta með vindinum í Hlíðarvatni) og svo var strippað hratt inn!!!! Svon væntanlega streamer veiðar þarna á ferðinni. Ætli hér gildi ekki hið gamalgróna að gera allt þveröfugt við hefðirnar gefur oft besta veiði. Breytt af - chrysophylax þann 05/05/2010 09:07:23
 |
Falk65
798 Póstar
|
Póstað - 04/05/2010 : 16:49:39
Veiðin í gær var sérstök að einu leiti í Bleikju er maður vanur að draga rólega jafnvel með hléum en eina sem dugði voru ca 50 cm stripp hröð og ákveðin þannig að púpurnar sulluðu í yfirborðinu og þá tók hún hana oftast með látum og gusugangi :) menn eiga aldrey að vera smeikir við að bregða út af vananum og hefðum vatnasvæða svo fremi sem það er innan veiðireglna svæðisins oft getur einmitt einhver útúrdúr frá hefðum gert munin og skapað svo nýjar hefðir . Tel samt að veðrabrigðin hafi skift öllu datt í logn eftir vestan átt og blesi svo upp með suð suðaustan átt og hiti reis hratt og þá varð þetta golden moment og tökur viðstöðulausar :) Breytt af - Falk65 þann 04/05/2010 16:52:24 G-Loomis Stinger GLX þriggja hluta 14fet Lína#9/10 G-Loomis Native Run GLX fjögura hluta 10fet Lína#6 G-Loomis PMR tveggja hluta 9fet Lína#7 Wow þessi var allavega 20 p :) |
capt.hook
5 Póstar
|
Póstað - 01/06/2010 : 14:14:06
Ég er búinn að stundu veiðar við Hlíðarvatn í allnokkur ár og eina aðferðin sem henntar langbest er hratt stripp!! mæli með að menn prufi það enda miklu skemmtilegri aðferð :)  |
Lærlingur
34 Póstar
|
Póstað - 01/06/2010 : 14:39:54
Hvaða flugur eruði að nota við stripp? |
capt.hook
5 Póstar
|
Póstað - 01/06/2010 : 22:10:21
Ég hef verið að nota mjög þungar púpur, helst krókinn og bronslitaðar púpur, þær hafa virkað furðu vel.  |
Dante
72 Póstar
|
Póstað - 01/06/2010 : 22:22:39
Var að skoða veiðileyfi þarna og sá að það var nokkuð laust í júlí. Er það samt ekki fín tími? Dauðlangar að skella mer þangað og prófa.  |
dagsi
172 Póstar
|
Póstað - 02/06/2010 : 00:25:13
Júlí er mjög göður tími í vatninu, bleikjan er bara ekki á sönu stöðunum.<http://straumar.blog.is/blog/straumar/> |
bjartsýnn
21 Póstar
|
Póstað - 02/06/2010 : 12:01:33
Sæll dagsihvar telur þú að hún haldi sig í júlí? Sveltur sitjandi kráka en fljúgandi fær :-) |
dagsi
172 Póstar
|
Póstað - 02/06/2010 : 12:30:33
Þad er alltaf góð von á henni hjá mölini við veiðihús stangveiðifelagi hafnafirdinga, og sídan öll lengjan frá hafnafirdingamönnum til selfossinga, þar setti ég í góða veiði í fyrra:-) kaldiósin var mjög líflegur um miðjan júlí í fyrra, og sídan var þad réttarnefið, eða nes, sem var mjög gjöfullt, og víkin þar.<http://straumar.blog.is/blog/straumar/> |