| Höfundur |
Póstur  |
|
sal0401
16 Póstar
|
Póstað - 21/07/2010 : 14:41:33
Er að fara eftir viku og langar til að skilja kaststöngina eftir heima og taka með mér bara flugustöngina. Fór í fyrra en fékk ekki flugufisk:( Hvert er leyndarmálið með fluguna þarna? Er með intermed. línu með sökk enda.
|
Lærlingur
34 Póstar
|
Póstað - 21/07/2010 : 15:03:41
Reglan með Veiðivötn er að það eru engar reglur. Held að það sé ekkert leyndarmál með fluguna þarna. Mest virðist vera um veiði með Nobblera. Þá dregur þú Nobblerana þannig að hreyfingarnar líki eftir sílum. Svo er gott að sökkva vel því það er ansi djúpt í flestum vötnunum þarna. Mér gekk þó best með að veiða í yfirborðinu og ekki á Nobblera heldur á pöddur eins og Peter Ross. Mig grunar að þegar ég var að veiða með sökklínu hafi ég ekki látið sökkva nógu langt niður. Stærstu fiskarnir eru ekki oft í yfirborðinu heldur alveg við botninn. Þó kengbognaði flugustöngin hjá veiðifélaga mínum í yfirborðinu. Svo er bara málið að prófa flest vötnin. Ég var t.d. ekki var í Hraunvötnunum sem eru talin bestu vötnin af mörgum og ég þekki menn sem veiða nær eingöngu þar.  |
sighhja
78 Póstar
|
Póstað - 21/07/2010 : 15:50:21
hvaða vötn eru best fyrir fluguna, er líka að fara eftir viku fór í fyrra, og náði einhverjum á flugu en mest litlum fiski í mjóddinni í nýjavatni.. virkar nobblerinn jafn vel í bleikjuna og urriðan...og þá eitt í viðbót veit einhver hver er að selja sára.. er það enþá til í intersport...  |
halldorg
72 Póstar
|
Póstað - 21/07/2010 : 20:11:15
Flugan virkar vel í öllum vötnum uppfrá - þetta er spurning um ástundun og að falla ekki í beitufarið of fljótt.Í Litlasjó eru t.d. mjög góð flugusvæði inni í botni, við Norsaravík og allt í kringum Hermannsvík. Svæðið frá Hermannsvík út að Litlutá er mjög gott flugusvæði. Bátseyrin í Stórafossvatni er frábær og eins Kerlingarlögnin. Held að menn séu heldur gjarnir á að nota stóra strímera þarna því mín reynsla er að Peacock, Killer og aðrar klassískar gefa einnig vel þarna eins og annarstaðar. Margir hafa tröllatrú á að strippa eins hratt og þeir mögulega geta en mér hefur oft gengið best með því að láta sökkva í rólegheitum og dóla síðan inn í enn meiri rólegheitum. Sárinn skilst mér sé verri beita en "venjulegi" makríllinn sem er feitari. Breytt af - halldorg þann 21/07/2010 20:12:06  |
SvartiZulu
89 Póstar
|
Póstað - 21/07/2010 : 22:41:05
Smá leyni ;)Prufaðu pheasant tail kúluhaus með grænu tinsel á bakinu. Kv Leyni-Zulu  |
Gamli taumurinn
23 Póstar
|
Póstað - 21/07/2010 : 22:51:53
quote:
Flugan virkar vel í öllum vötnum uppfrá - þetta er spurning um ástundun og að falla ekki í beitufarið of fljótt.Í Litlasjó eru t.d. mjög góð flugusvæði inni í botni, við Norsaravík og allt í kringum Hermannsvík. Svæðið frá Hermannsvík út að Litlutá er mjög gott flugusvæði. Bátseyrin í Stórafossvatni er frábær og eins Kerlingarlögnin. Held að menn séu heldur gjarnir á að nota stóra strímera þarna því mín reynsla er að Peacock, Killer og aðrar klassískar gefa einnig vel þarna eins og annarstaðar. Margir hafa tröllatrú á að strippa eins hratt og þeir mögulega geta en mér hefur oft gengið best með því að láta sökkva í rólegheitum og dóla síðan inn í enn meiri rólegheitum. Sárinn skilst mér sé verri beita en "venjulegi" makríllinn sem er feitari. Breytt af - halldorg þann 21/07/2010 20:12:06
Þar hefur þú rangt fyrir þér þvi sárinn er feitari % lega séð og er skinnið þykkara og helst betur á öngli.  |
sighhja
78 Póstar
|
Póstað - 22/07/2010 : 09:36:54
ok hvar fæ ég þessa flugu Zulu er hún seld einhverstaðar eða sérsmíði...;)og er sárinn enþá seldur í intersport vitið þið það...  |
sighhja
78 Póstar
|
Póstað - 22/07/2010 : 09:37:04
ok hvar fæ ég þessa flugu Zulu er hún seld einhverstaðar eða sérsmíði...;)og er sárinn enþá seldur í intersport vitið þið það...  |
magnusb
63 Póstar
|
Póstað - 22/07/2010 : 09:44:06
Ég myndi líka taka sökkendann af intermediate línunni. Þú kastar lengra án hans og nærð lengra rennsli með fluguna niður við botninn með intermediate línunni einni saman. Þú verður bara að bíða aðeins lengur eftir því að hún sökkvi. Stuttur taumur, kannski 1 til 1,5 metrar.Það skiptir eiginlega engu máli hvaða straumflugur þú notar. Nobblerar (hvítir og svartir), Black Ghost osfrv...allt gott. Ekki vera með þá of stóra, kannski á legglanga öngla nr. 8-12. Góða skemmtun..  |
gisli sig
143 Póstar
|
Póstað - 22/07/2010 : 11:50:22
Ég hef farið í 11 ár í Vötnin og fyrir 3 árum var mér bent á að fara að strippa rétt fyrir neðan yfirborð (50-100cm) eftir að ég fór að gera þetta þá jókst aflinn OG STÆRÐIN um ca. 50%. Ætla ekki að reyna að segja hvaða fluga er best en að hafa alla liti af noblerum er það sem ég mæli með go hafa helst 3 stærðir af hverjum lit. Hef lent í því að prófa alla liti af nobblerum og endaðiá að reyna orange og ekkert gerðist, setti þá aðeins stærri orange nobbler og bam þá fór þetta að gerast. Vinur minn var með mér og ekkert var að gerast ég sagði honum að setja stærri undir og bamm. EKKI túlka þetta þannig að ég segi að þú eigir að veiða bara á nobblera því black goast, rektor, dýrbítur og margar fleiri eru að virka vel. Eftir að ég fór að strippa hef ég alltaf fengið 8-9p fiska í hverri ferð.mbk gísli sig Að veiða meira og meira, meir´í dag en í gær. |
Lærlingur
34 Póstar
|
Póstað - 22/07/2010 : 11:55:00
Gísli, í hvaða vötnum ertu mest að taka þessa stærstu?  |
sighhja
78 Póstar
|
Póstað - 22/07/2010 : 16:54:58
takk fyrir upplýsingarnar... gott ráð með að hafa sökkendan ekki á.. ég myndi örugglega hafa interm. og sökkenda líka... Gísli hvaða vötn og hvaða staði mæliru með í fluguveiðina eins og þú varst að tala um og strippaðiru þá hratt eða hægt þessa 50 til 100cm fyrir neðan yfirborðið... og ertu þá að flengja flugunni langt út eða...  |
jonp
8 Póstar
|
Póstað - 22/07/2010 : 20:21:26
Sæll Sal0401Það er enginn stóri sannleikur um fluguveiði í Veiðivötnum en ég skal segja þér aðeins frá því sem hefur reynst mér vel, og vona að það nýtist þér. Ég er búinn að stunda veiðar í Veiðivötnum í yfir þrjátíu ár og þar af með flugu eingöngu í yfir tíu ár. Fluguna prófaði ég alltaf frá byrjun en ég veiddi nánast ekkert á hana fyrr en ég skildi beitu og spúnastangir eftir í bænum. Þannig að fyrsta ráðið sem ég gef þér er að taka BARA flugustöngina með og skilja freistinguna eftir heima:) Langmest hef ég notað hægsökkvandi Intermediate línu glæra og er sammála þeim sem benda þér á að taka sökkendann af. Alveg sérlega skemmtilegt að veiða með streamer eins og Gísli Sig lýsir rétt undir yfirborði, sérstaklega hefur þetta gefið mér vel víða Litlasjó þar sem er víða aflíðandi dýpkun og lítið um bratta kanta uppundir landi. Þarna er fiskurinn oft mjög nálægt landi og þess vegna; ekki byrja á því að vaða - kasta fyrst úr fjörunni. Ég held að menn veiði á þær flugur sem þeir hafa trú á inní Vötnum en þær sem hafa reynst mér best undanfarin ár eru Black Ghost Zonker með svörtum keiluhaus og ámáluðum augum, stórfiskabani !! - Kötturinn, Aldan rauð/svört/græn, Nobbler allir litir en mest hvítur og svartur, Bidda fína, Tantra er líka að verða skæð og í þó nokkru uppáhaldi. Flotlínu nota ég helst ef ef það er mikið fluguklak í gangi og fiskurinn er að éta klakpúpur í yfirborðinu og þá er gott að setja undir eitthvað smátt. Ég hef notað Pheasant Tail, Peacock, Krókinn og Klakpúpu með árangri við þessar aðstæður. Í bleikjuna nota ég líka Intermediate og dreg bara mjög hægt og hef fengið talvert af bleikju í gengnum tíðina á td Krókinn, Latex, og Blóðorm. En í sumar þegar ég var þarna fékk félagi minn þó nokkrar fallegar bleikjur á Bleikt Og Blátt í Breiðavatni. Gangi þér vel og góða skemmtun - veðrið ætti að verða flott í næstu viku suðlægar áttir með smá vætu annað slagið. Er sjálfur að fara inneftir á Mánudaginn og verð í þrjá daga - get varla beðið. Sjáumst kannski:) Með Veiðivatnakveðju  |
sighhja
78 Póstar
|
Póstað - 23/07/2010 : 11:16:17
takk strákar fyrir upplýsingarnar alltaf gott að fá svona beint frá mönnum sem hafa stundað veiðivötnin mikið... ég er að fara á miðvikudag í næstu viku, fór í fyrra í fyrsta skiptið og gekk ekki mikið með fluguna.. en reyndi og reyndi. Jonp ertu þá að strippa hratt þarna með streamer rétt undir yfirborðinu.. og ertu þá að kasta þessu langt eða... er það svona basicið að strippa hratt fyrir urriðan og hægt fyrir bleikjuna eins og annarstaðar eða bara prufa allt? hvaða vötnum ertu helst að veiða í... svo mikið af vötnum þarna og ef maður er í tvo daga reyna að skipuleggja hvað maður á að taka.. hálfan heilan hálfan... tók í fyrra litla vatna hringinn þegar ég mætti og eyddi svo kvöldinu í litla sjó og svo öfugt um morguninn daginn eftir... litla sjó fyrst og svo bleikjuvötnin...  |
gisli sig
143 Póstar
|
Póstað - 23/07/2010 : 13:17:38
quote:
takk fyrir upplýsingarnar... gott ráð með að hafa sökkendan ekki á.. ég myndi örugglega hafa interm. og sökkenda líka... Gísli hvaða vötn og hvaða staði mæliru með í fluguveiðina eins og þú varst að tala um og strippaðiru þá hratt eða hægt þessa 50 til 100cm fyrir neðan yfirborðið... og ertu þá að flengja flugunni langt út eða...
Sæll. Tók 8p núna í Litlasjó, í fyrra var það í Hellavatni. Hef fengið marga góða úr Grænavatni einnig. Góðir fiskar hafa verið' að koma úr Rauðagíg og Nýranu. Fór í fyrsta skipti í Miðvatnið í ár og það er skemmtilegt vatn.mbk gísli sig Að veiða meira og meira, meir´í dag en í gær. |
khs
32 Póstar
|
Póstað - 24/07/2010 : 13:17:57
Hafa menn verið sérstaklega að veiða á móti vindi eða tekið mið að því hvernig vindur hefur blásið þarna undanfarna daga? Einn reyndur sagði mér að hann veiðir alltaf á móti vindi því þá er flugan og annað yfirborðsagn fyrir fiskinn á bakkanum fyrir framan hann og urriðin eltir það.Kristinn |