| Höfundur |
Póstur  |
|
Hargo
55 Póstar
|
Póstað - 26/07/2010 : 18:26:45
Ég er með útlenskan félaga sem býr í USA sem langar mikið að fá íslenska veiðiþætti senda á DVD. Ég hef verið að grenslast um þetta fyrir hann og eina sem ég hef fundið er DVD diskurinn Veiðiperlur (þættir sem Stöð2Sport eru að fara að sýna í vetur). Eruð þið með einhverjar hugmyndir um góða veiðiþætti fyrir kappann? Hann ætlar sér að koma að veiða á Íslandi næsta sumar býst ég við.Ég man sjálfur bara eftir þáttunum Sporðaköst sem ég átti á VHS á sínum tíma.
|
sighhja
78 Póstar
|
Póstað - 26/07/2010 : 18:47:17
veitt með vinum er til í einhverjum seríum....  |
blomberg
43 Póstar
|
Póstað - 26/07/2010 : 19:10:31
Af hverju tekur laxinn!  |
Hargo
55 Póstar
|
Póstað - 26/07/2010 : 20:18:35
Takk fyrir þessa titla. Er búinn að finna Veitt með vinum í Elko. Finn hinsvegar ekki Af hverju tekur laxinn.Hvernig er það annars, hafa Sporðaköst þættirnir ekkert verið gefnir aftur út á DVD? Man eftir að þetta voru mjög vandaðir og vel unnir þættir - er búinn að glata VHS spólunum. |
laxmadur
12 Póstar
|
Póstað - 26/07/2010 : 20:25:17
Ég á disk sem heitir Veiðilandið og er úrval úr Sporðakastaþáttunum. Man hins vegar ekki eftir að hafa séð þættina sjálfa á DVD.  |
laxableik
43 Póstar
|
Póstað - 26/07/2010 : 20:40:16
Afhverju tekur laxinn, var seld í Ellingsen, veit ekki núna.  |
SvartiZulu
89 Póstar
|
Póstað - 26/07/2010 : 21:33:45
Er ekki Trout Bum 3 um veiði á Íslandi - fæst hjá kröflu.is minnir mig Svo eru líka þættirnir frá því í vor á skjá einum, held þeir hafi heitið Með öngul í rassinum - veit ekki hvort þeir eru til á DVDKv Zulu Breytt af - SvartiZulu þann 26/07/2010 21:35:34  |
Hængur
189 Póstar
|
Póstað - 28/07/2010 : 11:24:28
Afhverju tekur laxinn hefur fengist á bensínstöðvum víða um land og er til í veiðibúðinni á Akranesi og þar eru líka til einhverjir diskar af veitt með vinum. Gott ef sporðaköst fáist ekki þar líka. bara bjalla þangað og gá hvað er til 431 4318Veiðilandið var síðast til í hagkaup og fékkst á klink. Með öngul í rassinum er klárlega ekki kominn á dvd þar sem er svo stutt síðan að þeir voru í sjónvarpinu ef ekki er en verið að sýna þá, koma örugglega út fyrir jól. Njóttu náttúrunar.......
|
Hargo
55 Póstar
|
Póstað - 28/07/2010 : 21:02:01
Takk fyrir þetta Hængur, skoða þetta :) |
David84
41 Póstar
|
Póstað - 05/08/2010 : 03:34:47
http://www.inntv.is/Horfa_á_þætti/Eru%20þeir%20að%20fá%20hann? þetta er reyndar á íslensku en gaman að kíkja á  |
elegannt
14 Póstar
|
Póstað - 05/08/2010 : 18:51:27
Ég á sporðaköst þættina á flakkaranum mínum og er mikið að bíða eftir að þeir verði gefnir út á dvd.  |
Hargo
55 Póstar
|
Póstað - 05/08/2010 : 21:44:19
Er kominn með Sporðaköst 1 til 5, Veiðilandið, Af hverju tekur laxinn og Veiðiperlur. Það ætti að duga um sinn og sannfæra hann um að koma til Íslands að veiða :) |
BinnZ
154 Póstar
|
Póstað - 06/08/2010 : 17:02:50
Hvar fékkstu Sporðaköst Hargo?Kv. G. Hjalmar |
Hargo
55 Póstar
|
Póstað - 06/08/2010 : 17:22:25
Fann risa stóran veiðipakka á íslenskri torrent síðu og þar downloadaði ég Sporðaköst þáttunum. Þetta er bara í VHS gæðum samt. Skrifaði þá svo á DVD með forritinu ConvertXtoDVD3 og mun svo senda gaurnum þetta á DVD. Hina titlana sem ég nefndi keypti ég á DVD.Veit að þetta er ólöglegt niðurhal en tók mér bessaleyfi til að ná í Sporðaköst þættina þar sem þeir eru algjör snilld að mínu mati. Ég keypti líka upprunalegu VHS spólurnar á sínum tíma (gegnum Sjónvarpsmarkaðinn, hehe) þannig að vonandi er þetta bara smávægur glæpur hjá mér. |
David84
41 Póstar
|
Póstað - 06/08/2010 : 18:56:25
Uss væri alveg til að sjá þá þætti aftur sporðaköst  |
Sindri_
20 Póstar
|
Póstað - 06/08/2010 : 20:56:29
David, þeir eru inn á icebits.net, þar að segja ef þú vill gerast bófi ;).  |