Gamlir inniskór númer 42. Þrjú kúluflotholt þar af eitt brotið. Derhúfa bleik að lit. Naprex vöðlur (Sýningareintak) Vélarvana Patrol. Hnöttótt kafloðin kerling.
Póstað - 21/05/2012 : 23:42:14
Hef bara farið þangað einu sinni. Hífandi rok svo varla var hægt að kasta, en ég fór bara beint af augum frá Útey þar sem ég keypti leyfið. Var í einhverja 2-3 tíma um þetta leyti árs og fékk eina 2pd bleikju. Hélt ekki að fiskurinn þarna næði þeirri stærð.
Póstað - 23/05/2012 : 09:53:54
sælir fínar lýsingar hér að ofan ;-) - Annars var ég búinn að falast eftir veiðilýsingu frá bóndanum í Útey til að setja með þeim upplýsingum sem ég er með inná veiða.is en hann átti þær ekki skriflegar, en sagðist alltaf reyna að gefa þeim mönnum góða lýsingu sem kæmu og keyptu leyfi hjá honum. Því er besta ráðið að reyna að hitta á hann þegar leyfin eru keypt.