| Aðalsíða | Dagatal | Dorgveiði | Greinar | Stangveiði | Skotveiði | Korkur | Myndaalbúm | Tenglar | Smáauglýsingar | Um Veiðivefinn |
Nýskrá Lifandi póstar Meðlimir Leit Bókarmerki FAQ
Notendanafn:
Lykilorð:
Muna lykilorð | Búin/n að gleyma lykilorðinu???
 
 Allir flokkar >>  Almennt >>  Besti tími Varmár
 Prentvænt  
Höfundur Fyrri póstur Póstur Næsti póstur  
maggisveit


79 Póstar
Póstað - 27/05/2012 :  11:43:19  Sýna prófíl  Heimasíða maggisveit  Svara með tilvitnun Senda  maggisveit persónuleg skilaboð
Hver er besti tíminn þarna, bestu staðir og hvar kaupir maður leyfi í ánna ? :)

magnús ríkharðsson

Kvistur


121 Póstar
Póstað - 27/05/2012 :  12:25:45  Sýna prófíl  Heimasíða Kvistur  Svara með tilvitnun Senda persónuleg skilaboð til Kvistur
Mín reynsla er sú að besti tíminn sé í september. Þá helst eftir miklar rigningar. Ég hef gert mína bestu veiði þarna þegar áin er vel lituð og vatnsmikil. Stærstu fiskarnir eru á Stöðvarsvæðinu en svo eru góðir staðir við Frost og Funa og í kringum golfvöllinn. Besta veiði sem ég hef lent í var hins vegar á milli brúarinnar við sundlaugina og niður að þjóðvegsbrúnni. Þá lentum við í göngu og það var fullt af fiski í hverjum hyl. Ég hef hins vegar ekki orðið var við að sjóbirtingur stoppi mikið á þessu svæði.
SVFR er með ána.


Kv. Kvistur
http://vfkvistur.wordpress.com/

Fara efst á síðu

maggisveit


79 Póstar
Póstað - 28/05/2012 :  00:45:11  Sýna prófíl  Heimasíða maggisveit  Svara með tilvitnun Senda persónuleg skilaboð til maggisveit
Takk fyrir Kvistur en hvað myndir þú segja að besti tíminn væri ef maður er að leita eftir bleikjunni og laxinum?

magnús ríkharðssonFara efst á síðu

luddi


394 Póstar
Póstað - 28/05/2012 :  01:17:09  Sýna prófíl  Svara með tilvitnun Senda persónuleg skilaboð til luddi
Maggisveit,þú skalt ekki gera ráð fyrir því að finna lax í sjóbirtingsá eins og varma enda veiðast þeir fáir þar og á haustin.
Ég hef fari 1.sinni í þessa á með þaulvönum heimamanni í ágúst.

Þrömmuðum hana út um allt,sáum fisk stökkva í fossinum.Reykjadalsfoss heitir hann það????tók ekkert.
fengum lítinn fisk á neðri svæðunum.

Fundum loksin nýgenginn fisk rétt hjá golfvellinum,enda varð þá veisla,lönduðum 7 stk 59 cm til 71 cm,misstum marga vegna kæruleysis,plús ég var að prufa nýja stöng,langaði að reyna á hana....

Svo var öllu sleppt(landaðir plús misstir,nema einn sem blæddi og var kjálkabrotinn)

Fara efst á síðu

Kvistur


121 Póstar
Póstað - 28/05/2012 :  01:25:07  Sýna prófíl  Heimasíða Kvistur  Svara með tilvitnun Senda persónuleg skilaboð til Kvistur
Ég hef sjálfur aldrei landað bleikju þarna yfir 2 pundum en stóra bleikjan á víst að veiðast best snemma á vorin. Ég fór þarna tvisvar í júní í fyrra (sá eina stóra bleikju í Stöðvarbreiðu) og þá var mér sagt að á sumrin væri bleikjan mest frá stíflu og niður. Ég hef oftast farið á haustin og þá alltaf einblínt á birtinginn. Í fyrra veiddist mest af laxinum í lok júlí-byrjun ágúst minnir mig. Þeir voru nú ekki margir eða innan við 15 stk held ég.


Kv. Kvistur
http://vfkvistur.wordpress.com/

Fara efst á síðu

luddi


394 Póstar
Póstað - 28/05/2012 :  01:33:37  Sýna prófíl  Svara með tilvitnun Senda persónuleg skilaboð til luddi
Kvistur gæti ekki verið að við vorum saman í Bíldsfellinu í byrjun apríls? 6 minnir mig?

Fara efst á síðu

Kvistur


121 Póstar
Póstað - 28/05/2012 :  01:39:09  Sýna prófíl  Heimasíða Kvistur  Svara með tilvitnun Senda persónuleg skilaboð til Kvistur
Það gæti vel verið. Við vorum á stórum svörtum Dodge ram.


Kv. Kvistur
http://vfkvistur.wordpress.com/

Fara efst á síðu

luddi


394 Póstar
Póstað - 28/05/2012 :  01:49:04  Sýna prófíl  Svara með tilvitnun Senda persónuleg skilaboð til luddi
Hehe já Jepplingurinn minn leit út eins og viðrini við hliðinná honum...

Fara efst á síðu

maggisveit


79 Póstar
Póstað - 28/05/2012 :  10:52:20  Sýna prófíl  Heimasíða maggisveit  Svara með tilvitnun Senda persónuleg skilaboð til maggisveit
Takk fyrir upplýsingarnar strákar :-)

magnús ríkharðssonFara efst á síðu

   


Flýtileið:

Setja veidi.is sem upphafssíðu Setja sem bókarmerki í vafranum þínum Copyright © 1995-2012 Veiðivefurinn® Allur réttur áskilinn. Fara efst á síðu