| Aðalsíða | Dagatal | Dorgveiði | Greinar | Stangveiði | Skotveiði | Korkur | Myndaalbúm | Tenglar | Smáauglýsingar | Um Veiðivefinn |
Nýskrá Lifandi póstar Meðlimir Leit Bókarmerki FAQ
Notendanafn:
Lykilorð:
Muna lykilorð | Búin/n að gleyma lykilorðinu???
 Allir flokkar >>  Almennt >>  Vantar ráðleggingar frá vönum fluguveiðimönnum
 Prentvænt
Síða:
       1  |  2      Fyrri síða | Næsta síða | Endurhlaða
Höfundur Fyrri póstur Póstur Næsti póstur  
Hargo


86 Póstar
Póstað - 12/06/2012 :  20:51:49  Sýna prófíl  Svara með tilvitnun Senda  Hargo persónuleg skilaboð
Góðan dag félagar.

Mig langar að leita ráða hjá ykkur. Ég er búinn að fikta aðeins í fluguveiðinni í nokkur ár en aldrei farið all-in eins og sagt er. Maður er oft ansi fljótur að grípa í kaststöngina þegar manni finnst illa ganga að kasta flugunni. Ég hef aldrei pælt mikið í græjunum sjálfum, þ.e.a.s. flugustönginni, hjólinu og línunum. Núna langar mig hinsvegar að græja mig upp og vera með þetta á hreinu, nota sem sagt rétta línu fyrir rétta stöng og réttar aðstæður. Það ætti vonandi að hjálpa mér í kastæfingunum.

Með hverju mælið þið, hvaða þyngdum á línum og stöngum fyrir semi-byrjanda?

Ég er að nota núna einhverja gamla Cortland Graphite 7/8 flugustöng. Ég veit ekkert hvaða stærð af línu er á fluguhjólinu sem er á henni, veit bara að það er flotlína.

Mig langar helst að hafa svona all-around línu sem auðvelt er að kasta. Er ekki best að byrja þannig og vera svo með sökkenda bara ef maður þarf að sökkva flugunni eitthvað? Eru ekki þyngri línur sem hjálpa manni að kasta

eisik


304 Póstar
Póstað - 12/06/2012 :  21:05:54  Sýna prófíl  Svara með tilvitnun Senda persónuleg skilaboð til eisik
Kastnámskeið er það besta og fallegasta sem nokkur fluguveiðimaður, vanur eða óvanur, getur gert fyrir sjálfann sig :)

Tékkaðu t.d á http://veidiheimur.is/

Ég veit það hljómar kannski leiðinlega að fara á námskeið í einhverju sem maður telur sig alveg geta kennt sér sjálfur. En ég var í nákvæmlega sömu sporum og þú fyrir nokkrum árum og síðan ég fór á kastnámskeið hef ég ekki kastað spún eða beitu.

Annars nenni ég ekki að telja upp einhver merki og læti. Þú átt eftir að kafna í uppástungum í þessum þræði :)

http://www.veidieidur.wordpress.comFara efst á síðu

trolli85


56 Póstar
Póstað - 12/06/2012 :  21:34:06  Sýna prófíl  Svara með tilvitnun Senda persónuleg skilaboð til trolli85
kastnámskeið númer eitt tvö og þrjú. farðu með stöngina þína í veiðiflugur og fáðu 4cast gauideline flotlínu. þetta virkaði fyrir mig.

kv

Rúnar

Fara efst á síðu

Hargo


86 Póstar
Póstað - 12/06/2012 :  22:39:10  Sýna prófíl  Svara með tilvitnun Senda persónuleg skilaboð til Hargo
Já mér datt það einmitt í hug að fara með stöngina og hjólið í einhverja veiðibúð og láta sérfræðingana setja góða línu á græjuna.

En já ætli maður endi ekki bara á námskeiði. Ég hélt einmitt að þetta myndi bara koma með tímanum en maður verður þá að halda áfram og kasta meira með flugunni. Það er bara oft svo freistandi að grípa í kaststöngina þegar vindurinn er að pirra mann eða köstin ekki að ná nógu langt út. Mig langar að vera duglegri við þetta, þess vegna vona ég að rétt lína hjálpi til við köstin og í kjölfarið verð ég aðeins strangari við sjálfan mig að kasta lengur þó ekki gangi alltaf allt upp í köstunum.

Fara efst á síðu
eisik


304 Póstar
Póstað - 12/06/2012 :  22:50:39  Sýna prófíl  Svara með tilvitnun Senda persónuleg skilaboð til eisik
Ég skil þig mjög vel.

En svo er spurningin hvað þú ætlar að gera ef línan sem þú kemur til með að kaupa þér á 13.000 kall (td. 4Cast frá Guideline) hjálpar þér ekki. Kaupa aðra línu? :)

Auðvitað getur vel verið að þú sért með vitlausa línu á stönginni, og þá kannski of létta. En námskeið er eitthvað sem kemur til með að stytta leiðina að góðu kasti um marga klukkutíma, og marga þúsundkalla :)

Svo eru þessir kennarar líka oftast hafsjór af fróðleik varðandi fluguveiði og gaman að spyrja þá spjörunum úr.

http://www.veidieidur.wordpress.comFara efst á síðu

Steini Haff


466 Póstar
Póstað - 12/06/2012 :  23:17:52  Sýna prófíl  Svara með tilvitnun Senda persónuleg skilaboð til Steini Haff
Sæll eitt gott ráð frá reyndum manni þú ferð aldrey að treysta flugugræjunum fyrr en þú skilur kaststöngina eftir heima og ég veit það er erfitt en fyrr gerist ekkert.
Með bestu kveðjum og von um góðar stundir

Þorsteinn HafþórssonFara efst á síðu

Hauxon


109 Póstar
Póstað - 13/06/2012 :  11:06:45  Sýna prófíl  Heimasíða Hauxon  Svara með tilvitnun Senda persónuleg skilaboð til Hauxon
Ég myndi reyna að fá mér nútímagræjur. Þessar gömlu grafít stangir eru þungar og mjúkar svipur og mikið erfiðari að kasta en nýjar stangir sem eru flestar nokkuð stífar (sem auðveldar köstin). Það er mjög algengt að byrjendum sé ráðlagt að fá sér stöng fyrir línu nr 8 en ég er ekki sammála því. 8 er sögð góð alhliða, sem gengur bæði í silung og lax en byrjandi fer kannski ekki mikið í lax og því bara vitleysa að kaupa alltof þunga stöng til að byrja með, auk þess sem sexa er fín í laxinn.

Ég myndi ráðleggja þér að fá þér stöng og línu #6 og þá línu með skothaus. Línur eru oftast WF (weight forward) sem þýðir að fremsti hlutinn er þykkari og þyngri til að auðvelda köstin. Lína með skothaus er með enn þyngri framenda (ca. 2 númerum þykkari, en endinn er styttri en á venjulegri WF línu. Sjálfur nota ég mest Airflo 40+ intermediate (skothaus)línu og er bara sáttur við hana en hef heyrt vel af látið af Rio Outcast líka. Intermediate lína er fjölhæfara veiðitæki en flotlína, þ.e. h

Fara efst á síðu

Git


24 Póstar
Póstað - 13/06/2012 :  12:31:47  Sýna prófíl  Svara með tilvitnun Senda persónuleg skilaboð til Git
Sæll

Myndi byrja á því að skella mér á námskeið áður en þú ferð að spá í öðrum græjum.
Ég fór á námskeið hjá http://veidiheimur.is/ og sé ekki eftir því frábært námskeið í alla staði.


***Þó þú hafir ekki fiskað er ekki þar með sagt að þú hafir ekki verið í veiði.***Fara efst á síðu

saeli


46 Póstar
Póstað - 13/06/2012 :  13:40:18  Sýna prófíl  Svara með tilvitnun Senda persónuleg skilaboð til saeli
Varðandi línuval þá má það koma fram að hægt er að kaupa samsettar línur, þ.e.s. haus og belg er splæst saman með lykkju. Ég keypti á sínum tíma hjá Veiðihorninu veski frá Scierra sem innihélt belginn og þrjá mismunandi hausa (flot, intermediate og sökk). Mér dugar hins vegar lang oftast að nota flotlínuna og hafa hæg- eða hraðsökkvandi taum á endanum eftir aðstæðum. Í þau örfáu skipti sem ég nota sökkhausinn þá er auðvelt að skipta um, án þess að hafa aðra spólu (sem er þó auðvitað mun betra). Að vissu leyti er þessi samsetning því eins og skotlína þar sem belgurinn er með minni vigt en hausinn. Ef þú ætlar að fá þér heila línu þá færðu þér flotlínu og notar frekar intermediate taum ef þér þykir þurfa. Ég myndi fá mér skotlínu því það er auðveldara að ná henni út en fyrir vikið er hún aðeins klunnalegri að leggjast niður.

Kastnámskeið er mikilvægt. Það er þó er betra að fá kennsluna við vatnið. Það er allt annað að kasta úti á túni eða inni í sal, heldur en með blauta línu vi

Fara efst á síðu

eisik


304 Póstar
Póstað - 13/06/2012 :  14:40:35  Sýna prófíl  Svara með tilvitnun Senda persónuleg skilaboð til eisik
Kastnámskeið Veiðiheims fara fram að Elliðavatni held ég, a.m.k að hluta til.

Veiðiflugur eru með námskeið við Rauðavatn

Námskeiðið sem ég fór á var í Hafravatni.

Held að það sé annsi sjaldgjæft að svona námskeið fari eingöngu fram á túni :)

http://www.veidieidur.wordpress.comFara efst á síðu

saeli


46 Póstar
Póstað - 13/06/2012 :  14:42:35  Sýna prófíl  Svara með tilvitnun Senda persónuleg skilaboð til saeli
Ég fór hjá SVFR sem haldið var í TBR

nokkrum vikum seinna átti að fara upp á Rauðavatn, ég mætti ekki þangað :-(

Fara efst á síðu

acefly


71 Póstar
Póstað - 14/06/2012 :  21:05:01  Sýna prófíl  Heimasíða acefly  Svara með tilvitnun Senda persónuleg skilaboð til acefly
ég myndi krípa tækifærið og fara á námskeið hjá Klaus Frímor frábær kastari og kennari hann er að kenna þessa daganna og það má örugglega bæta við hja´honum talaðu við þá hjá veiðiflugum.fylgir diskur með eftir námskeið til að styðja við námskeiðið þegar það er búið.

kv
Acefly
http://acefly.blog.isFara efst á síðu

addni


96 Póstar
Póstað - 16/06/2012 :  11:27:56  Sýna prófíl  Svara með tilvitnun Senda persónuleg skilaboð til addni
Fyrri skrifarar eru alveg með þetta. Kastnámskeið er MUST, maður opnar augun og lærir heilmikið hjá góðum kennara.

Ég er ekki mikið eldri en þú í fluguveiðinni, en ég er einmitt fársjúkur og sinni engu öðru áhugamáli.

Meðan að þú ert að komast að því hvort að þú ætlir "hobbíleiðina" eða "fíknileiðina" myndi ég mæla með þessu:

"Hobbíleiðin"

9' Stöng, línu #7 í 4 hlutum. Og hér eru rökin: Lína 7 er að mínu mati mest alhliða, þar sem að hún er ákkúrat á milli silungs & lax. 9 fet er rosalega þægileg stærð og 4 hluta er einfaldast uppá að ferðast með þetta.

Ég myndi síðan fá mér "byrjendapakka" frá "merki", þar sem að þú getur verið viss með ábyrgð. Nægir að nefna Redington, Sage, Loop, Scott, Orvis, o.s.frv.

"Fíknileiðin"
Keyptu allt sem þú vilt eftir að þú ert búinn að fara á kastnámskeið.


Eins og allir eru að tyggja á, kastnámskeið er gulls ígildi. Eftir það kemstu fljótt að því hvaða "Action" stangir henta þér og þínum kasstíl (hei, við erum jú ekki öll eins). É

Fara efst á síðu

Hargo


86 Póstar
Póstað - 24/06/2012 :  17:37:23  Sýna prófíl  Svara með tilvitnun Senda persónuleg skilaboð til Hargo
Ég ákvað að fjárfesta í nýrri Guideline 9,6 feta stöng og 4cast Guideline línu númer 7. Var að prófa hana áðan, mun auðveldara að kasta með henni - hvort sem það er nýja stöngin eða línan sem er að hjálpa mér (já eða samspil beggja). Get kastað mun lengra án þess að línan fari í einhvern vöðling og lendi með látum. Finn mikinn mun á þessari stöng og gömlu Cortland stönginni minni, er mjög sáttur með kaupin.

Næst á dagskrá er svo að skella sér á kastnámskeið við tækifæri og æfa sig. Takk fyrir ráðleggingarnar.

Fara efst á síðu
bitta


169 Póstar
Póstað - 25/06/2012 :  10:25:09  Sýna prófíl  Heimasíða bitta  Svara með tilvitnun Senda persónuleg skilaboð til bitta
Slepptu þessu.
Farðu á bryggjuna þegar makríllinn kemur og sæktu þér beitu og í svanginn.
Notaðu svo bara sökkuu eða flot og beittu makríl.
Fluguveiðar eru fyrir þá sem borða ekki fisk og vilja leika sér að matnum.

Framkvæmdastjóri Bíttá Helvítið Þitt - Veiðifélag fátæka mannsins
http://bitta.123.is
Fara efst á síðu

Bigg


228 Póstar
Póstað - 25/06/2012 :  13:52:22  Sýna prófíl  Svara með tilvitnun Senda persónuleg skilaboð til Bigg
Hafið þið tekið eftir hvernig bitta birtist hérna með svona önugar og þrasgjarnar athugasemdir á ca 28 daga fresti. Stendur yfir í 2-3 daga og svo hverfur hann. Ætli hann sé á túr?

Fara efst á síðu

Þessi póstur er 2 síður:
       1  |  2      Fyrri síða | Næsta síða | Endurhlaða
 


Flýtileið:

Setja veidi.is sem upphafssíðu Setja sem bókarmerki í vafranum þínum Copyright © 1995-2012 Veiðivefurinn® Allur réttur áskilinn. Fara efst á síðu