| Aðalsíða | Dagatal | Dorgveiði | Greinar | Stangveiði | Skotveiði | Korkur | Myndaalbúm | Tenglar | Smáauglýsingar | Um Veiðivefinn |
Nýskrá Lifandi póstar Meðlimir Leit Bókarmerki FAQ
Notendanafn:
Lykilorð:
Muna lykilorð | Búin/n að gleyma lykilorðinu???
 Allir flokkar >>  Almennt >>  Hólaá
 Prentvænt
Síða:
       1  |  2      Fyrri síða | Næsta síða | Endurhlaða
Höfundur Fyrri póstur Póstur Næsti póstur  
Finnur


97 Póstar
Póstað - 18/07/2003 :  14:43:58  Sýna prófíl  Svara með tilvitnun Senda  Finnur persónuleg skilaboð
Sælir,
Ég er dálítið forvitinn um Hólaá hjá Laugarvatni, ég man eftir að hafa lesið einhversstaðar um stóra bleikju veidda þar. Gaman væri að vita ef einhver veit um þessa á, þ.e. hvernig veiðist og hvað leyfi kosta.

Kv. Finnur


ehelg


4 Póstar
Póstað - 18/07/2003 :  17:16:58  Sýna prófíl  Svara með tilvitnun Senda persónuleg skilaboð til ehelg
Það kostar 1500 dagurinn. Var þarna fyrir um tveim vikum síðan, fékk engan fisk en yndislegt veður. Fyrr um morguninn tók einn veiðimaður 20 bleikjur, veit ekki hvað stórar. Sama dag veiddist 8 punda urriði. Taktu net með útaf mýi. Ansi margar þarna.

Kveðja
EinarFara efst á síðu

benhel


30 Póstar
Póstað - 19/07/2003 :  00:06:50  Sýna prófíl  Svara með tilvitnun Senda persónuleg skilaboð til benhel
Sæll Finnur.

Veiðleyfið færðu á einum Úteyjar bæjunum t.d. þar sem reykhúsið er. Útfallið úr vatninu er vinsæll staður en núna er bleykjan kominn vel niður í á og nóg af henni. Þetta er mjög skemmtileg lítil á fyrir fluguveiði.

Kveðja
Benhel.

P.s. Það var reyndar ég sem tók þennan 8 punda urriða á föstudaginn fyrir viku. Appelsínugulur nobbler nr. 10 ef einhver vill vita það.

P.ss. Gleymdi ég að minnast á að ég fékk 6.5 punda lax þarna í september í fyrra? Hvað um það hann tók Heimasætu nr. 8!!!Fara efst á síðu

Finnur


97 Póstar
Póstað - 21/07/2003 :  13:44:44  Sýna prófíl  Svara með tilvitnun Senda persónuleg skilaboð til Finnur
Þakka góð svör, ég ætla að kíkja á Hólaá fljótlega, læt þá vita hvernig gekk.

kv.
FinnurFara efst á síðu

tha


1175 Póstar
Póstað - 20/07/2005 :  10:37:02  Sýna prófíl  Svara með tilvitnun Senda persónuleg skilaboð til tha
Endurvek þennan póst frá 2003.

Fór þarna á mánudaginn með öðrum stráknum mínum, fengum þrjá.
"Allt brjálað" deginum áður.
Hvaða reynslu hafa menn af þessum stað, er dagamunur á bleikjunni þarna, þ.e.a.s. eitthvað svipað og Brúará, tekur ekki neitt suma dagana???

Veiddum uppstream, sáum c.a. 10 bleikjur ofarlega rétt 50-100 metra frá ósnum, sama hvað við buðum þeim, vildu ekki taka.

Gaman væri að heyra frá einhverjum sem hefur veitt þarna oft (en líka hinum).

Kveðja, tha.
><)))(">
Fara efst á síðu

myrdal


56 Póstar
Póstað - 20/07/2005 :  22:17:46  Sýna prófíl  Svara með tilvitnun Senda persónuleg skilaboð til myrdal
ég var við veiðar í hólaá í síðustu viku og var þá í 2 daga og á þeim tíma tók ég ca 30-35 fiska og nokkuð margir af þeim voru vænir vel yfir 2 pund og missti reyndar líka einn sem var þó nokkuð stærri .
ég var aðalega í ósnum og þarna sem þú varst að veiða "tha" og hann var aðalega að taka hjá mér frekar litlar ljósar flugur með kúluhaus og Mobuto.
kveðja jón
Fara efst á síðu
DigitAll


3 Póstar
Póstað - 30/06/2006 :  23:44:07  Sýna prófíl  Svara með tilvitnun Senda persónuleg skilaboð til DigitAll
Fann þennan póst frá því í fyrrasumar.
Vildi bara deila því með ykkur að ég var að þurrka 4 ára gamalt ryk af veiðigræjunum og fór í Hólaá.
Ég tók 8 stk, þar af tvo urriða sem voru báðir milli 5 og 6 pund.
Mjög sáttur og nú vil ég bara fara að koma mér almennilega af stað aftur. Er gömul Arnarvatnsheiðargæs en mér finnst umferðin þar of mikil nú á dögum. Sakna gömlu tímanna þegar maður þurfti að hafa fyrir því að fara þangað og í verðlaun var maður kominn á stað sem fáir sóttu.

Hvernig er A.heiðin í dag,....er sæmilega veiði þarna ennþá?
Er eitthvað vit í að fara þangað um miðjan júlí? Fór alltaf uppúr miðjum eða lok júní.

SteiniFara efst á síðu

Snælda


916 Póstar
Póstað - 02/07/2006 :  14:19:25  Sýna prófíl  Svara með tilvitnun Senda persónuleg skilaboð til Snælda
Hvar fær maður veiðileyfi í hólaá og hvað kostar stöngin? erum mikið að spá í að skella okkur þangað á næstunni nokkrir félagar..

kv,

Fara efst á síðu

Ross


221 Póstar
Póstað - 03/07/2006 :  16:39:52  Sýna prófíl  Heimasíða Ross  Svara með tilvitnun Senda persónuleg skilaboð til Ross
Útey. Afleggjari til hægri áður en komið er að Laugarvatni. Vel mergt með flöggum. Mig mynnir að verðið hafi verið orðið 2000 kr
Það er líka selt árskort á rúmlega 10.000 kr


Breytt af - Ross þann 03/07/2006 16:42:22

Fara efst á síðu

tha


1175 Póstar
Póstað - 03/07/2006 :  18:10:06  Sýna prófíl  Svara með tilvitnun Senda persónuleg skilaboð til tha
Nei, var ekki verðið nær 4.000 kallinum???

Mér fannst verðið allavega alltaf í hærri kantinum fyrir ekki meiri á.


Breytt af - tha þann 03/07/2006 18:14:07

Kveðja, tha.
><)))(">
Fara efst á síðu

joog


110 Póstar
Póstað - 03/07/2006 :  18:35:24  Sýna prófíl  Svara með tilvitnun Senda persónuleg skilaboð til joog
Leyfið kostaði 2þ. kall í fyrra sem er allof mikið fyrir þessa á. Það er fallegt þarna, ekki spurning, en þetta er allof hátt verð fyrir á sem ber max 2 stangir í einu (ótakmarkaðaður fjöldi stanga seldur) og krefst töluverðrar göngu. Ef menn komast ekki í miðri viku, þá myndi ég frekar fara í t.d. brúará eða önnur svæði með betra aðgengi fyrir svipaðan pening. Eins er bleikjan þarna í smærri kantinum (algengt 3-400 gröm), en þó er von á ágætis urriðum, sbr. digitall, held samt þeir séu taldir á fingrum annarar handar yfir sumarið.

-joiFara efst á síðu

stjaniben


201 Póstar
Póstað - 04/07/2006 :  18:30:46  Sýna prófíl  Heimasíða stjaniben  Svara með tilvitnun Senda persónuleg skilaboð til stjaniben
ég var þarna fyrir um mánuði síðan.. tók eina 1,5 punda bleikju í ánni á Kibba orm #16, svakalega sprækur og skemmtilegur fiskur, tók svo 2 minni í vatninu á litlar mýpúpur #20. Félagi minn fékk eina 2 punda í vatninu á spún. Ég er sammála því að þetta sé of dýrt.

www.stjaniben.wordpress.comFara efst á síðu

myrdal


56 Póstar
Póstað - 04/07/2006 :  20:15:17  Sýna prófíl  Svara með tilvitnun Senda persónuleg skilaboð til myrdal
Sælir drengir
Ég er búinn að vera nokkuð í Hólaá. Seinustu 3 vikur er ég sennilega búinn að fara svona 4 sinnum og fá í þeim ferðumm 40 fiska sem ég hef hirt en þá erum við að tala um fisk frá 2 pundum og upp. Það er best að veiða bara beint út frá bílastæðinu þessa dagana meðann hitinn er ekki meiri en þegar það fer að hlýna virkilega þá borgar sig að kíkja í ána.
kveðja Jón Mýrdal

Fara efst á síðu

Snælda


916 Póstar
Póstað - 04/07/2006 :  21:46:39  Sýna prófíl  Svara með tilvitnun Senda persónuleg skilaboð til Snælda
Sælir,

Flott veiði hjá þér Myrdal.. en á hvað ertu að taka þessa fiska og hvað er stöngin að kosta á dag.. er það þessi 2000 kr sem talað er um hérna eða?

kv,

Fara efst á síðu

DigitAll


3 Póstar
Póstað - 04/07/2006 :  23:44:22  Sýna prófíl  Svara með tilvitnun Senda persónuleg skilaboð til DigitAll
Verðið fyrir daginn í Hólaá er 1.500 og ég keypti mitt leyfi í Austurey, ekki Útey. En athugið að þó ég hafi tekið þess fiska þarna, þá barði ég ána í samtals ca 6 klst án þess að verða var. Tók allt sem ég tók á tiltölulega stuttum tökutíma.

SteiniFara efst á síðu

Snælda


916 Póstar
Póstað - 04/07/2006 :  23:50:52  Sýna prófíl  Svara með tilvitnun Senda persónuleg skilaboð til Snælda
Sælir,

Erum að fara þarna bráðlega tveir félagar, það væri gaman að fá smá upplýsingar um svæðið. Þ.e.a.s á hvaða flugur eru menn að veiða þarna? Eru menn að veiða þetta upstream eða með þungum straumflugum?

allt sem hjálpar vel þegjið:D

kv,

Fara efst á síðu

Þessi póstur er 2 síður:
       1  |  2      Fyrri síða | Næsta síða | Endurhlaða
 


Flýtileið:

Setja veidi.is sem upphafssíðu Setja sem bókarmerki í vafranum þínum Copyright © 1995-2010 Veiðivefurinn® Allur réttur áskilinn. Fara efst á síðu